þá hefst það

Hef ætlað mér að byrja að blogga í nokkurn tíma núna.
heilu pistlarnir hafa skrifast í hausnum á mér um hin og þessi málefni 
en um leið og ég loksins kom mér í að búa til bloggsíðu og ætlaði nú
aldeilis að setjast niður og skrifa um allt það sem hefur verið
að hringsóla í hausnum á mér þá bara... er allt tómt!

Jæja, en núna er ég allavega búin að opna aðgang og get þá
næst þegar heilinn fer á fullt farið í tölvuna og skrifað þetta niður.

ég mun sko tjá mig um allt milli himins og jarðar, og ég veit vel að ég hef oft alveg einstakar skoðanir á hlutum og sérstakar pælingar og annað hvort líkar þeim sem lesa það eða ekki. sama er mér. Aðallega er ég að þessu til að rýma aðeins til inni í hausnum á mér.

Á við þunglyndi og ýmislegt annað að stríða og líkamsverki.. Mig semsagt verkjar í líkamann.. aðallega bakið en þetta stingur mig svona hér og þar. Ekki gaman en maður venst.. upp að vissu marki. en þetta mun allt fá sína eigin bloggfærslu, einhvertímann! En allavega hugmyndin af því að gera þetta var aðallega útaf þessu. Fer lítið út meðal fólks og er eiginlega óttalega vitlaus þegar kemur að pólitík og öðru málefnanlegu og bara í að tjá mig við íslendinga, þar sem ég hef lengi búið útí í landi.. útlandi! en líka úti á landi.. um tíma.
mér hefur þó verið sagt að ég sé ágætis penni og ákvað því að byrja allavega á því að opna mig hér áður en ég stefni á landsyfirráð... múhahahaha... nei segi bara svona wink

 

... to be continued


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband